20.44.64 Stafræn myndvinnsla og kennslugagnagerð

ECTS: 4 einingar
Kennslumisseri: Vor
Viðfangsefni: - Stafræn myndvinnsla og tölvunotkun í myndmiðlun. Verkefni unnin með stafrænni myndvinnslu. Helstu myndvinnsluforrit notuð, svo sem Photoshop, Freehand og Illustrator. Notkun jaðartækja kynnt. - Kennslugagnagerð. Nemendur hanna eigin kennsluverkefni í samvinnu við kennara. Skoðaðar verða markmiðslýsingar, kennslumáti og matsaðferðir í tengslum við námskrá og námsáætlun nemenda. Vinnulag í staðnámi: Fyrirlestrar og umræðutímar. Nemendur vinna kennslugögn og verkefni fyrir margmiðlun og gagnaflutning. Vinnulag í fjarnámi: Fyrri hluti námskeiðsins er kenndur í staðbundinni lotu og nemendur koma saman í lok námskeiðs og kynna verkefni sín. Námskeiðið er opið öllum nemendum skólans. Það er jafnframt í boði á kjörsviði í upplýsingatækni. Námsmat: Verkefni verða metin til einkunnar.


Umsjónarkennari: Gunnsteinn Gíslason
Kennari: Magnús Sigurður Guðmundsson